Skip to Content

Ýmsar kerrur

Ýmsar kerrur

Bjóðum upp á sérsmíðaðar kerrur t.d. yfirbyggðar kerrur eða það sem þér dettur í hug. Sjáðu hér að neðan.

Kerrur í sérverkefni

Sérútbúin kerra fyrir  krabbameinsrannsóknartæki.  Kerran hefur þann eiginleika að geta slakað afturenda alveg niður að jörðu, en það er mikill kostur þegar þarf að rúlla inn þungum og viðkvæmum tækjum. Kerran er fyrsta færanlega leitarstöð á hjólum á Íslandi.
   
   

Kerra undir tjaldið

Kerra sem 2ja manna tjald hefur verið fest á, alveg kjörinn ódýr tjaldvagn. Leitið upplýsinga.

 

 

 

 

 

Kerra fyrir bílinn í ferðalagið.

2.000-3.500 kg. bílakerrur innfluttar sjá www.unsinn.de eða íslensk smíðaðar eins og þessi.

 

 

 

 

 

Off-road kerra fyrir Línudeild Landsnets.

Landsnet Línudeildin var afhent off-road 3,0 tn. kerra á 33" dekkjum með amerískum fjaðrabúkkum og ALKO bremsubúnaði.

 

Kerra undir saltdreifara fyrir Reykjavíkurborg. Notaður aftan í lítinn bíl til að dreifa salti í þröngar húsagötur.